Skrifa í gestabókina Skoða gestabókina

Það hafa 32 skrifað í gestabókina

13. ágúst 2005
Rósa Björg Brynjarsdóttir
Hæ, hæ Til hamingju með brúðkaupið. Alltaf gaman að fylgjast með hvað þú ert dugleg Sigurrós. Það mættu margir líkjast þér. Rósa Björg - yngri barna sviði.

03. ágúst 2005
Marni Mortensen - Hey
Hey Riddarin av Íslandi! Just a few words of hello and congratulations to you and Sigurrós from the centre of the universe: Tórshavn, Faroe Islands! :-) I know you can probably read Faroese but most others here don't and my Icelandic sucks, so... :-) Wishing you two a GREAT life ahead and hope to stay in touch. Internet is a wonderful thing, and you are a walking genious in this context. Hope to see you one day in Iceland, and you are of course always welcome to the green and rough paradise here too. Take good care of yourself and the Icelandic history in the library :-) CU on-line Marni

19. júlí 2005
selma - afmæliskveðja
Sæl kæru HJÓN! Takk fyrir frábæra brúðkaupsveislu.Þetta var frábær dagur og virkilega gaman.Elsku Sigurrós ,til hamingju með daginn og njótið ferðarinnar (það sem eftir er).Kveðja Selma,jói,Sigþór og Sólrún María

19. júlí 2005
Mamma - Til hamingju
Hjartanlega til hamingju með afmælið elsku Sigurrós mín. Við hlökkum mikið til að hitta ykkur eftir brúðkaupsferðina. Kveðjur og knús frá okkur öllum hérna. Mamma

19. júlí 2005
mamma/tengdó - Kveðja frá Selfossi.
Vonandi að það fari nú aðeins að minnka hitinn svo þið fáið að njóta vel þessara daga í Annecy. Bestu kveðjur frá okkur á Selfossi.

13. júlí 2005
Theó
Innilega til hamingju enn og aftur! Ég skemmti mér ótrúlega vel í brúðkaupinu, falleg athöfn, góður matur, skemmtilegt fólk, skemmtileg tónlist, æðisleg stemmning. Ég á eftir að lifa á þessu um aldur og ævi :D

12. júlí 2005
Sindri Scheving - Til hamingju!
Elsku besta Sigurrós Til hamingju með brúðkaupið þinn vinur Sindri 2.SJO

12. júlí 2005
Stefa
Mahnahmahnah-dudduruduru-mahnahmahnah ....til hamingju elsku grislingarnir mínir. Þetta var frábær dagur og brillíant hvað allt heppnaðist vel. Þakka fyrir mig og minn... *Knús* Stefa og krílið

12. júlí 2005
Unnur - Til hamingju sæta fólk!
Innilegar hamingjuóskir með að vera nú orðin eitt! :) Megi gæfan fylgja ykkur !

11. júlí 2005
Ingunn
Innilega til hamingju með daginn, aftur;) Þetta lukkaðist alveg ótrúlega vel og ég skemmti mér alveg konunglega. Góða ferð til Franslands!!

11. júlí 2005
Gunnar Grímsson - Innilega til hamingju
og megið þið blómstra um ókomin ár :D

10. júlí 2005
Þórunn - Brúðkaup
Kæru brúðhjón, ég óska ykkur innilega til hamingju með giftinguna, hlakka til að sjá fleiri myndir frá atburðum gærdagsins. Bestu kveðjur frá Þórunni í Portugal, netvinkonu Rögnu K Jónsdóttur

06. júlí 2005
Mamma
Þetta með Heiðu ljósmyndara er ekki alveg eins fyndið. Mér finnst þetta hvílíkt brot á gerðum samningum. Það er merkilegt að fólk skuli auglýsa sig með þessu mótí því auðvitað fréttist svona lagað, ekki síst á tímum Internetsins. Ég bara varð að "kommentera" á þetta því mér finnst Heiða hafa komið illa fram og það er ekki henni að þakka að þú hefur fundið annan til að taka myndirnar. Hún var allavega ekki sjálf búin að útvega neinn annan í sinn stað. ´ Eins gott að ég gerði ekki þessa færslu strax í gær því þá hreinlega sauð á mér ég var svo reið.

06. júlí 2005
Theó
Nei nei en þetta toppaði nú allt! Gífurlega fyndið alveg hahahahahahha

06. júlí 2005
Sigurrós
Varstu nokkuð búin að gleyma því hvað ég er alltaf rosalega fyndin? ;) hehe

06. júlí 2005
Theó
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA UNDIR LOKIN (EKKI AUGNLOKIN) HAHAHAHAHAHAHAHAHA

03. júlí 2005
Gunnar - Glæsileg sem fyrr :)
Krefst þess að fá bloggfærslu til að minna mig á að setja inn hamingjuóskir hér þegar þar að kemur :)

18. júní 2005
Theó
Oh ég er farin að hlakka svo til :D Vonandi gengur undirbúningur vel, trúi nú varla öðru þar sem þú ert nú ein sú skipulagðasta.

21. maí 2005
Mamma og Haukur - Auðvitað gömludansasyrpu
Maður lætur nú ekki segja sér tvisvar að fá að velja sér danslag í veislunni. Ég ætla að panta syrpu af gömlu dönsunum svona til að gleðja okkur öll, sem erum á besta aldrinum.

20. apríl 2005
Stefa - Jibbý jei
Gaman að sjá hvað þetta er að smella saman :D Varðandi söngvara í brúðkaupið þá mæli ég eindregið með því að þið syngið bara hvort fyrir annað - það verður miklu skemmtilegri minning fyrir vikið hvort sem söngurinn er fagur eða ekki ;o) ...tíhíhíhíhí... Kveðja, Stefa

13. apríl 2005
Jóhanna - Hellú
Vá hvað það er gaman að geta fylgst með framvindu mála í skipulagningunni. Mér finnst ég SVO langt í burtu þegar e-ð svona er að gerast þannig að mér líður miklu betur að geta fylgst svona með! Tálknafjarðarkveðjur :)

13. apríl 2005
Theó - Vei vei
Gaman að sjá að síðan er lifnuð við aftur :D... Ég held ég VERÐI bara að koma og banka upp á hjá þér fljótlega til að sjá þig á vappinu með kórónuna hihihi! Og ekkert vera að hafa áhyggjur af skónum,,, það er bara flott að vera í flatbotna sem þar að auki sjást hvort eð er ekkert! Um að gera að velja þægindin hihihi

16. mars 2005
Sigurrós
Já, þetta var nú sniðug hugmynd, Theó - en það er bara verst að það fór svo illa fyrir vondu stjúpsystrum Öskubusku sem skáru af sér hælinn og þær fengu ekki prinsinn... Þannig að ég held ég verði bara að finna aðra skó ;)

16. mars 2005
Theó - Skórnir!!
Ekkert SMÁ dúllulegir skór sem þú varst búin að finna!! Alveg EKTA Sigurrós.... Geturðu ekki bara skorið af þér hælinn eða eitthvað hihi.

16. febrúar 2005
Dóra Hanna - Frábært
Rakst á brúðkaupssíðuna ykkar en systir þín var búin að segja mér frá deginum ykkar í sumar. Það verður mjög gaman að kíkja hér inn og fylgjast með undirbúningnum. Þetta er alltaf svo spennandi og gaman þegar fólk er í þessum undirbúningi. Gangi ykkur rosalega vel og munið að þetta á að vera gaman!!! Bestu kveðjur frá Danmörku, Dóra Hanna og co.

14. febrúar 2005
Lena - Vei vei!!
Til hamingju með að vera búin að ákveða daginn:) Ég er strax farin að hlakka til! Frábært að geta fylgst með á þessari síðu;) Kær kveðja, Lena

09. febrúar 2005
Daði - Til hamingju
Ég ætla nú rétt að vona að maður fái að hjálpa eitthvað, innilega til hamingju með þetta:)

07. febrúar 2005
Helga Sigrún - Spennó
Oh þetta er svo spennó og frábært framtak hjá ykkur að leyfa manni að fylgjast með undirbúningnum. Ef það er EITTHVAÐ sem ég get aðstoðað við þá hoppið þið bara niður um eina hæð og bankið :Þ Kveðja Helga Sigrún

06. febrúar 2005
Sigrún - Gæsahúðin er enn!
Yndislegar fréttar sem ég fékk á laugardaginn frá þér og ég er enn með gæsahúð af ánægju:)

06. febrúar 2005
Mamma
Til hamingju með brúðkaupssíðuna. Eg var lögst í að skoða erlendu brúðkaupssíðurnar. Mikið er nú gaman að vera ungur í dag og vera að skipuleggja brúðkaupið sitt. Gangi ykkur vel með undirbúninginn. Kær kveðja,

06. febrúar 2005
Stefa - :D
Til hamingju krakkagrislingarnir mínir! Þetta er alveg frábært hjá ykkur :D *Knús* Ykkar Stefa

06. febrúar 2005
Elva - Til hamingju
Þetta er frábær síða og rökrétt framhald af þema sambandsins so far að setja upp heimasíðu í tengslum við stóra daginn, hihi. Meiriháttar fyrir svona útlaga eins og mig að geta fylgst með öllu úr fjarlægð. Ég óska ykkur bara innilega til hamingju, brúðkaupið ykkar verður örugglega ótrúlega kósí :D Kær kveðja, Elva.

 

» © Betraból 2005 «